Landsmót í Vetmannaeyjum!
14. október 2009
Hæhæ!
Hér eru nokkrar mikilvægar upplýsingar varðandi Vestmannaeyjar:
1. Ef einhver í hópnum hefur grun um eða er með inflúensu (Svínaflensu). Skal hann láta tafarlaust vita!
2. Allir þurfa að senda mynd af sjálfum sér á mailið: unglingastarf@gmail.com, seinasta lagi kl. 24 á morgun (fimmtudag),
-það er sniðugt að nota facebook myndina sína eða eitthvað svoleiðis.
3. Orkudrykkir eru bannaðir á mótinu.
-Farangur-
Þegar haldið er í ferðalag sem þetta þá er nauðsynlegt að hafa réttan farangur. Því viljum við benda ykkur á nokkra hluti sem eru mikilvægir.
Föt til skiptanna, sundföt, skjólfatnað, góða skó og íþróttaskó. Nauðsynlegt er að koma með svefnpoka, kodda og dýnu (einbreiða), snyrtidót, s.s. tannbursta, tannkrem, sjampó, handklæði og fleira því tengt er nauðsynlegt. Munið líka eftir búningum fyrir laugardagskvöldið.
Svo verðum við að muna að þegar við erum í svona útilegu er nauðsynlegt að vera jákvæð/ur. Hafa bros á vör, gleði í hjarta og sýna náunga okkar fyllstu virðingu!
! Varðandi Svínaflensu !
Þeir sem hafa verið með flensulík einkenni nýlega eða eru með flensulík einkenni, fara ekki á mótið. Mikilvægt er að þau sem hafa verið með flensu hafi verið hitalaus í a.m.k. tvo sólarhringa.
Brottför í Þorlákshön (Herjólf) frá Reykjavík er föstudaginn 16. október kl. 17:30 frá Breiðholtskirkju.
Þeir sem eiga eftir að borga skulu borga inná reikning 303-26-1414, kt. 600169-3439.
Ef að það eru einhver vandræði er hægt að hafa samband við Betu í síma: 8659967
Kv. Gylfi og Beta
—